Been working on the Lizzie Kate picture on the weekend. Have now finished the top half (the house/grass/tree). The tree is beautiful, simple but beautiful. It was fun seeing it come to life. This piece will be linked to LOTR in my mind because I've been listening to the BBC version I borrowed from a friend.
I didn't finish the first mitten of the Norwegian mitten as I planned for the weekend. I still have the thumb to finish. Only the thumb! I couldn't even get started on it, I was too excited about the Lizzie Kate picture :o !!!
Monday, March 07, 2005
Friday, March 04, 2005
Friday on my mind
Arg, I pressed the wrong button earlier and deleted my message. So here is the shorter version.
Clint's slippers were done for his birthday but one of the heal was inverted during felting and didn't felt as much as the rest. To be fixed and photos after the fact!
(this text was about 5x longer in the lost post)

My next goal is to go on with the neglected Norwegian mittens and then do a baby outfit for the new baby. I found a pattern at my friend Hafrún's (see picture, click on it for bigger picture). Her son has an oufit after this pattern and it is beautiful and not too complicated to make ;)
Cross stitch wise I am little by little finishing the August SAL but mostly stitching the Lizzie Kate picture. It goes slowly because I'm working slowly and fixing every cross that is not to my liking. I'm not used to stitch like this, maybe this is some maternal hormone thing sneaking up on me :o My Silkweaver fabric came but is at the customs. I'll get it after the weekend.

Monday, February 28, 2005
Wizards potions
Here is a picture of the teddy bear wizard. I looked up when I bought it and it was Feb. 29th 2004. So I just managed to finish it before the 1 year anniversary :) There were some lone crosses around the wizards' head and they were troubling me. In the photo that came with the kit you could see the thread running from one cross to the next, through the fabric. I didn't want that. I asked the girls in the summer house and they came up with the brilliant solution of using beads instead. They even had beads that matched the design. I could choose from different shades of red and green :)
Sunday, February 27, 2005
Frábær helgi
I had a great weekend. I went with bunch of women to my dad's and step-mom's summer house from Friday until Sunday. The craft of chose for these women is cross stitching and we stitched all weekend through. It was great not having to do anything else. We hardly slept, stayed up until 2-3 AM and were stitching before noon next day. People hardly even used the hot-tub! Me and my stepmum, stepsister also did some knitting. I finished my husband's slippers, well the knitting part. I didn't have the other one and it needs sewing up and then they will be washed. I finished the Wizards potions kit as well and did bunch on my French village.
Ég átti frábæra helgi, handavinnuhelgi. Á föstudagskvöldið fór ég ásamt 5 öðrum handavinnubrjálæðingum í sumarbústaðinn hans pabba og Sigrúnar. Brjálæðingum segi ég því það var sko ekki gert annað en að sauma, sauma og svo aftur sauma með smá prjóni inn á milli. Það var varla að maður náði að toga þær með í pottinn. Undantekningin voru Ásturnar (tvær þeirra heita Ásta), þær voru sko alltaf til í pottinn! Við vorum að fram á miðja nótt og svo var byrjað aftur fyrir hádegi daginn eftir, harkan 6! Á laugardeginum komu svo þær Sigrún og Maja dóttir hennar (með handavinnu að sjálfsögðu) og ég eldaði um kvöldið (það gerist sko ekki oft).
Þessa brjálæðinga er að finna á stuðklúbbnum, Allt í kross. Hann snýst að mestu leiti um krosssaum en handavinna er náttúrulega alltaf handavinna. Í þetta sinn var það bara ég að bjóða prívat og persónulega í bústaðinn, enda rúmar hann varla fleirri í handavinnusæti (ekkert mál með gistingu).
Ég kláraði loksins Galdrabangann :) Mynd væntanleg, sem og myndir úr bústaðinum. Ég gerði slatta í Franska þorpinu og kláraði inniskónna hans Clints líka. Það var æðislegt að hafa heila helgi undir ekkert annað en handavinnu :) Klúbburinn planar sumarbústaðarferð í apríl. Ég hlakka ekki smá til. Ef einhver hefur áhuga þá bara að skrá sig í klúbbinn sem fyrst, allir velkomnir :)

Friday, February 25, 2005
Loksins mynd
Hérna er mynd af sokkunum sem ég prjónaði fyrir nokkru síðan. Ég er loksins búin að taka mynd koma henni á netið.

Þeir voru prjónaðir með Regia sokkagarni, 2 dokkum með uppskrift af netinu (Wendy).
English: I made these socks about a month ago and finally I have a picture on the web!

Thursday, February 24, 2005
Sendingin
Sendingin er komin! Hún lenti í tollinum eins og lög gera ráð fyrir. Nema hvað, þeir vissu ekkert hvað þetta var og vildu opna sendinguna bara af því að þeir skyldu ekki reikninginn. Ég var meira að segja spurð sérstaklega hvað þetta 'chart' væri - ekki nógu mikið handavinnufólk þarna! Til að gera langa sögu stutta þá munu blessuðu perurnar mínar tilheyra tollflokki sem krefst tollskýrslu! Þetta voru því dýrar perur enda kostar skýrslugerðin 1750 kr. (ágætis tímakaup það). Peran sem ég pantaði áður hefur algjörlega farið framhjá þeim og ég hafði ekki hugmynd um að það væri svona tollavesen. Ég hef hinsvegar lent í þessu líka með kaffi sem við keyptum frá Peet's.
English: The shipment has arrived but it turned out that the light-bulbs needed extra, expensive paperwork :( Some products (like coffee, see link above) do but others don't.

Thursday, February 17, 2005
Farwell dagljós
Dagljósaperan mín er sprungin :( Ég get nú ekki kvartað mikið því ég keypti hana í sumar og hún er búin að vera í stanslausri notkun síðan. Ég keypti hana á Sewandso og keypti bara eina af því ég var ekki 100% viss með stærðina. Hún passaði í lampann og nú er mér ekkert að vanbúnaði að panta fleiri. Þá grípur maður náttúrulega tækifærið og pantar ýmislegt annað líka ;)
Ég notaði því venjulega peru í staðinn og munurinn er ótrúlegur! Ég þreyttist mjög fljótt í augunum :(
Tilgangurinn með þessu bloggi var að hluta til að hjálpa mér að klára verkefni sem ég var byrjuð á. Það virðist ætla að virka. Gerði smá í Galdrakarlabangsanum mínum og er búin að finna neistann varðandi Franska þorpið aftur. Það er svo gaman að sauma þá mynd. Ég er svo fegin að vera búin að fatta það aftur :)
Aðaltilgangurinn var svo að fá að tjá mig um þessa ástríðu mína og monta mig í leiðinni ;)

Monday, February 14, 2005
WIP
WIP stendur fyrir 'Work-in-progress', þ.e. verkefni sem maður er að vinna að. Hérna til hægri á síðunni eru nokkur WIP og merkt við hvað mikið er búið af hverju. Markmiðið mitt er að klára sem flest krosssaumsverkefni og byrja ekki á nýjum fyrren ég er búin með gömul.
- Wizards potion er saumakit (kit er pakki með mynstri, garni, efni og nál) frá DMC sem ég keypti á Ebay síðasta vor. Mig vantaði þá verkefni áður en ég færi til BNA en þar ætlaði ég svo sannarlega að byrgja mig upp. Ég keypti heilmikið af efnum og allt DMC garnið, yfir 500 dokkur ( á Ebay og lét senda það til tengdó, fyrir 1/5 af verðinu hér heima!). Eftir að ég var búin að fá allt garnið kom uppsöfnuð þörf fyrir að gera hitt og þetta sem ég var búin að láta mig dreyma um að gera í veg fyrir að ég ynni í galdrakarlinum góða. Hann er líka lúmskur, fullt af kvartsporum, sem er frekar leiðinlegt að gera í aida, mun skemmtilegra að gera í evenweave. Aida er þetta hefðbunda krosssaumsefni þar sem einn kross nær yfir einn reit í efninu og kvartspor yfir hálfan reit, evenweave er samnefni á efni þar sem efnið er jafnt ofið (even-weave), þar fer einn kross yfir tvo þræði og kvartspor yfir einn. Nánari uppl. um efnin.
Galdrakarlinn er að mestu búinn, bara að klára að stinga og gera eins og eina stjörnu/leðurblöku! Reyndar er afturstingurinn ekkert auðveldur heldur, mikið af dökku á dökkt og svo fylgir hann ekki útlínum eins og oftast er gert. - Paddington í París er annað kit sem ég keypti í Danmörku í haust (lok ágúst). Mig vantaði eitthvað að gera í lestinni, en ég fór Kaupmannahöfn þvera og endilanga fram og til baka, 1-2x á dag! Þetta leit nógu einfalt út til að geta gert á ferðinni. Sem það var, bara einn litur í einu og engar litaskiptingar (bara einn blár t.d. en mism. tónar eru oft notaðir til að fá meiri dýpt í myndina). Ég hef aldrei áður haft áhuga á þessum teiknimynda krosssaumsmyndum en þetta hentaði fyrir þetta tækifæri. Núna er Paddington búinn og bara að tækla afturstinginn. Eins og fyrir Galdrakarlinn þá er hann í aida en afturstingurinn er oftar en ekki á milli reita! Maður verður bara að taka þetta einn þráð í einu held ég.
- Father Winter Ornament eftir Teresu Wentzler. Teresa þessi er þekktur hönnuður krosssaumsmynda. Myndirnar hennar hafa oftar en ekki mystískt þema og eru flóknar. Þetta mynstur er ókeypis á vefnum hennar og er svona reynslustykki fyrir Father Winter myndina, þar sem í henni er svona hvítsaumur. Þetta var hluti af leik sem er á net-saumaklúbbnum mínum. Í hverjum mánuði er lítið mynstur valið sem allir geta gert og sú sem er fyrst fær að velja fyrir næsta mánuð. Ég var fyrst með júlí SALið (SAL = Stitch-a-long) og fékk því að velja þetta. Ég náði hins vegar ekki að klára og þetta er búið að vera óhreyft síðan í ágúst. Ég er hrifin af drekunum hennar Teresu, t.d. þessum, sem minnir mann á að vera ekki að gera of mikið úr hlutunum (stormur í vatnsglasi myndi það vera á íslensku :) ).
- Franskt þorp var mynd í krosssaumsblaði, The World of Cross Stitching, sem ég keypti í Noregi á sínum tíma (Þrándheimi). Þessi mynd er 128x128 spor og gerð eftir vatnslitamynd. Hún minnir mig svo á gömlu þorpin í Frakklandi að ég stóðst hana ekki. Hún er líka alveg horn í horn, málverk reyndar og ég er nokkuð hrifin af svoleiðis myndum. Eftir að ég var búin að fá garnið mitt góða þá gat ég ekki beðið með að byrja á þorpinu. Upprunalega myndin var gerð í annað garn (Anchor) og eftir því sem ég vann verkið (byrjaði í efra vinstra horninu, en var byrjuð í miðjunni áður með afgangsgarni sem ég átti og passaði) sá ég að mér fannst litirnir sem upp voru gefnir ekki passa nógu vel. Litanúmerin voru gefin í amk 3 garntegundum. Ég fann á netinu lista yfir garnnúmer í Anchor og DMC og þá fann ég liti sem pössuðu betur og ég ákvað að byrja uppá nýtt! Nýtt efni og allt! Þessi mynd hefur legið í dvala lengi en ég tók hana aftur upp í gær. Þá sá ég að ég hafði gert villu og þess vegna lagt myndina til hliðar en í gær gerði ég slatta. Nú er ég búin með 1000 spor í nýju myndinni (gerði þau nú ekki öll í gær) en það er bara dropi í vatnið. Heildarsporafjöldi er yfir 16 þús. spor! Ég nota svona plastdót til að halda í efnið. Þetta er mjög þægilegt. Ég hef aðra hendina undir efninu og hina yfir. Krossarnir verða jafnari (þeir eiga það til að verða mis'hæðóttir' og garnið nýtist því betur og svo snýst ekki uppá það þegar maður saumar. Nú þá er myndin slétt en ekki krumpuð eins og þegar maður saumar í höndunum.
- Klukkustreng þennan fékk ég hjá ömmu minni, en hún var tæpl. hálfnuð með hann. Þetta er ekki krosssaumur (og ég man ekki hvað þetta spor heitir) en það eru saumaðar þrjár línur yfir 3 reiti (kemur út sem ferningur). Ég tapaði javanálinni minni og á núna bara of stóra javanál. Hef því ekki unnið í þessari.
Monday, February 07, 2005
Klárað um þessa helgi
Dundaði mér við krosssauminn um þessa helgi sem hluti af skipulagðri aflöppun. Prjónaði reyndar vettlinginn minn þannig að núna er bara þumallinn eftir. Hins vegar virðist sem kapp hafi verið meira en forsjá. Það virðist sem hann sé eitthvað undarlega prjónaður. Annars kemur það betur í ljós þegar hann er alveg tilbúinn (já ég veit að ég þarf að gera annan!). Ég hef aldrei prjónað svona mynstur á sokkaprjónum (nema á ermum í lopapeysum). Þannig að þetta var stöðugur lærdómur og vona ég að næst geti ég bæði gert vettlinginn og gert hann vel líka :o
En aðalatriði helgarinnar var lítil mynd sem mér var gefin í afmælisgjöf (14. okt síðastliðinn). Ég fékk reyndar 2 litlar myndir og rammar með. Ég var víst búin að lofa mér að byrja á engu nýju í krossinum en stóðst ekki þessa. Byrjaði á henni milli jóla og nýjárs þegar mig vantaði garn í laskermapeysuna góðu. Þetta er reyndar mjög fljótgerð mynd en hún hefur verið meira svona uppgrip hjá mér milli prjónaverkefna að undanförnu. Hún er reyndar mjög skemmtileg að sauma og vann á.
Hérna er mynd af henni eftir að ég er búin með krosssauminn og önnur eftir að ég er búin með afturábakstinginn (sumir segja bakstingur aðrir afturstingur en ég veit ekki hvað ég á að kalla þetta).

Það er smá munur á myndunum, ekki satt.
Svo kemur myndin römmuð uppá vegg.
Þær er svo að finna í stærra sniði á myndasíðunni, í þessari möppu.

Wednesday, February 02, 2005
Myndir, myndir, myndir
Sigrún frænka var svo sæt að lána mér myndavél. Nú get ég tekið myndir aftur, jibbí. Ég tók m.a. mynd af hjálmahúfunni (vantar bara fyrirsætu) og trúðasmekknum hennar Kamillu. Bara verst að hún er hætt að nota smekk!

Hérna eru svo vettlingarnir. Ég er búin með eitt 'blóm' og á annað eftir. Þetta er svo gaman. Ég væri sko löngu búin með þennan ef ég gæfi mér einhvern tíma í hann. Svo nota ég krosssaumssegulplötuna mína. Þetta er plata sem ég hef aldrei komist almennilega uppá lagið með í krosssaumnum en hentar mjög vel í þetta. Þá set ég segul yfir mynstrið þannig að ég sjái akkurat þá línu sem ég er að prjóna eftir. Algjör snilld.
Að lokum janúar BOM-ið. Næsta verður hjartalaga mynstur. Býst við að gera það minna (þetta er 30x30 cm en hitt verður væntanlega 20x20 cm, annars kemur það bara í ljós).
Ég á svo eftir að taka mynd af sokkunum góðu en mig vantaði einhvern í gær til að taka mynd af þeim á fótunum á mér.

Tuesday, February 01, 2005
Er ennþá að
Hafið ekki áhyggjur. Ég er ennþá að þrátt fyrir lítið blogg. Reyndar er líka handavinnan búin að vera í minna lagi. Bæði vegna álags (dagmamman var veik og ég vann langt fram á kvöld), hreinlætiæðis (er ólétt) og þreyttu (þegar ég er búin að jaska mér út á hreingerningum ;).
Ég hef verið að dunda mér í norsku vettlingunum. Það er ekki smá gaman að gera þá. Ég þarf að stoppa mig af svo ég sé ekki langt fram á nótt (ég þoli svo illa svefnleysi þessa dagana). Ég fann mynd af fingravettlingum með þessu norska mynstri. Það er mjög svipað það sem ég er að gera nema það eru ekki fingravettlingar heldur svona belgvettlingar (eða hvað það heitir) og mynstrið endurtekur sig.
Svo hef ég verið að dunda mér í saumavélinni. Er í startholunum með smáverkefni, sauma utanum, stytta buxur og svona. Svona smáverkefni taka mig nú bara kvöldið þannig að þetta gengur hægt, sérstaklega af því að ég fatta alltaf að mig vantar eitthvað smádót sem hver saumakona á og getur ekki verið án. Í handavinnuklúbb sem ég er í þá er verið að gera BOM (block-of-the-month). Þar sem einn bútasaumsferningur er gerður í hverjum mánuði. Þetta er mjög spennandi og tekur ekki of mikinn tíma (miðað við t.d. mánaðar-SAL (stitch-a-long) í krosssauminum). Janúarferningurinn er auðveldur og febrúar aðeins flóknari. Það er spurning hvernig þetta á eftir að koma út eftir árið og hvað maður á eftir að nota þetta í???? Spennandi. Endilega að skrá sig í klúbbin og vera með ef þú hefur áhuga.

Tuesday, January 25, 2005
Klárað um helgina
Um helgina kláraði ég amk 2 verkefni sem tók innan við klst að klára. Held ég eigi amk 2 önnur sem tekur innan við klst. að klára og mörg fleiri sem tekur lengri tíma að klára (aðallega krosssaum). Ég er sko sannarlega að klást við að-klára-fælnina!! Manni líður líka svo vel að verki loknu. Þar sem ég er hugsanalesari í frístundum mínum þá veit ég að lesandi góður spyr sig - afhverju ekki að klára fyrst það er svona lítið eftir? Svarið er að í handavinnu er það ákveðin innri þörf sem knýr mann áfram í að gera hlutinn. Í mínu tilfelli er það sköpunarþörfin. Um leið og sköpuninni er lokið og einungis á eftir að ganga frá smáatriðunum þá á ég það til að missa áhugann. Stundum kemur reyndar eitthvað annað upp (eins og jólin) þannig að maður þarf að leggja ákveðið verk til hliðar.
Sú var staðreyndin með húfuna sem ég kláraði um helgina. Þetta var hjálmahúfa (barnahúfa sem er í laginu eins og víkingahjálmur, einnig nefnd djöflahúfa!). Ég hafði grunn uppskriftina að húfunni en ekki fráganginn og ekki garn/prjónafestu/prjónastærð eða nein svoleiðis 'smáatriði' (sem eru ekkert smá þegar allt kemur til alls!). Ég var mikið að velta því fyrir mér hvernig t.d. böndin ættu að vera (til að binda undir höku). Þar sem ég hef aldrei gert svoleiðis áður þá þýddi það svolitla yfirlegu. Svo komu jólin og ég á kafi í að búa til jólagjafir. Böndin voru því búin að liggja í bleyti í nokkurn tíma áður en ég ákvað að búa til i-cord. Ég hef aldrei búið til slíkt áður en líst bara vel á. Svo heklaði ég utanum húfuna með krabbahekli, til að styrkja hana. Þessi húfa er handa Kjartani litla, syni Sólborgar vinkonu en hann er tæplega 2 mánaða um þessar mundir. Þetta er reyndar prufueintak en ég er að nota hann til að æfa mig í að gera svona húfu handa litla ófædda barninu mínu ;) Ég notaði Lanett ull, lillabláa og prjónaði fyrst með 2,5 mm pjónum en fannst húfan heldur lítil þannig að ég gerði aðra með 3 mm prjónum. Þetta er mjög fljótgert. Ég veit ekki hvaðan uppskriftin er. Áskotnaðist hún á netinu - mögulega copy/paste úr einhverri bók þannig að ég ætla nú ekki að vera að birta hana hér en sendu mér tölvupóst (sonja at richter punktur org) ef þú hefur áhuga.
Hitt verkefnið sem ég kláraði var bróderaður smekkur handa Kamillu. Ég saumaði (krosssaumur) stafina hennar í trúðalíki í hann. Trúðanna er að finna ókeypis á netinu. Þetta er litskrúðugt og nokkuð auðvelt en datt einhvern veginn uppfyrir á sínum tíma.
Ég hef ekki getað kveikt á myndavélinni minni síðan ég var að vinna að sokkunum um daginn (áður en ég kláraði). Bögg, bögg. Þannig að myndir koma bara seinna!

Friday, January 21, 2005
Sokkar búnir
Nú eru sokkarnir búnir og ég í þeim í vinnunni, sem og lopapeysunni góðu. Eins gott enda sá ég hitamæli á leiðinni sem sýndi -12°C. Þá var ég nýbúin að heyra í útvarpinu að það ætti eftir að hlýna!!! Varla kólnar meira úr þessu??
Sokkarnir eru ansi þröngir. Mynstrið er svona grunnmynstur og þar sem maður byrjar á tánum þá getur maður mátað sokkinn eftir því sem maður prjónar og lagað að fætinum. Ég gerði það hins vegar aðeins með lengdir en ekki breidd. Það var alveg nógu flókið fyrir mig í þetta skipti. Næst þegar ég prjóna eftir þessari uppskrift (jú, nokkuð viss um að það verður næst - Hafrún ætlaðir þú ekki líka að fara að prjóna sokka?) þá kem ég til með að auka út líka.
Því miður er engin mynd af sokkunum, þeir eru nefnilega geðv... flottir þó ég segi sjálf frá. Sjálfmynstrandi munstrið kom nokkuð vel út og þó að þeir séu ekki 'eins' þá er ég alveg sátt. Ég lét þá nefnilega ekki byrja á sama stað enda er svo langt á milli endurtekninga að það lítur út fyrir að vera random hvort eð er. Nema hvað, myndavélin neitar allri samvinnu. Það er bara lok læs og allt í stáli. Var einhver að tala um nýja myndavél???

Wednesday, January 19, 2005
Sko mína
Í gær saumaði ég á saumavélina mína - í fyrsta skipti. Ég veit ekki hvort ég ætti að skammast mín. Eiginlega ekki því ég er búin að vera á fullu annaðhvort í handavinnu eða í meðgönguþreytu síðan ég fékk hana. Þegar það kemur að handavinnu þá getur maður bara gert eitt í einu. Sumir eru svo heppnir að hafa bara eitt afmarkað áhugamál innan handavinnunnar eins og að prjóna bara eða sauma bara en ég vil helst gera allt!
Ég ætlaði að byrja á að sauma utanum sessuna í uppáhaldsstólnum mínum. Hann er meira en farinn að láta á sjá. Eiginlega er hann bara í henglum! En svo fattaði ég allt í einu að ég ætti eftir að þvo efnið. Hefði getað verið löngu búin að því! Í staðinn kláraði ég að stytta buxur. Ég var löngu búin að klippa neðan af þeim en náði ekki að sauma. Ég var ekki smá stolt af mér þegar ég var búin en ánægjan minnkaði þegar ég fattaði að ég er eiginlega hætt að komast í þessar buxur! Betra seint en aldrei ;) (ég notaði þær sko bara klipptar þannig að skaðinn er ekki svo mikill).
Regia sokkarnir mínir eru alveg að koma heim og saman. Á bara eftir að klára stroffið. Reyndar ekkert bara því það tekur sinn tíma að prjóna 17 cm stroff 2sl2br!
Held að þetta sé garnið sem ég er að nota. Það er amk 6 þráða og í þessum litum!

Friday, January 14, 2005
Laskerma búin!
Kláraði laskermapeysuna í gærkvöldi. Þetta var auðveld og skemmtileg peysa. Hún var skemmtileg afþví að ég var að gera laskerma peysu í fyrsta sinn (sem er lygilega auðvelt reyndar) og af því að ég hafði ekki hugmynd um hvernig peysan kæmi til með að líta út og það örvaði mann áfram í að prjóna. Hálsmálið var tilviljun. Ég hafði upphaflega ætlað að hafa það þrengra en ég var svo ánægð með það svona að það fékk að vera aðeins víðara. Bæði finnst mér það flottara og svo stingur það ekki í hálsinn svona!
Tuesday, January 11, 2005
Laskerma lopapeysan
Ég er mjög spennt yfir lopapeysunni sem ég er að prjóna. Þetta er ekki hefðbundin lopapeysa eins og ég hef gert áður. Hún er t.d. laskerma (það kemur lína frá handveginum að hálsinum, sjá t.d. þessa mynd) og úr mislituðu garni (eða sjálfmynstrandi garni). Garnið er rautt en í mjög breytilegum rauðum litum, alveg frá dökkvínrauðu yfir í ljósrauð/grátt (líklega blanda af hvítu og svörtu sem er lituð). Það kemur mjög sérstakt mynstur og ég er spennt að sjá hvernig afraksturinn verður, ermarnar eru t.d. ólíkar bolnum. Nú er ég búin að sameina ermar og bol og er byrjuð á brjóststykkinu (frá handvegi að hálsi). Þetta er í fyrsta sinn sem ég prjóna laskermar og var svolítið spennt að læra það. Það er mjög auðvelt og skemmtileg aðferð, fljótprjónuð líka.
Ég fer ekki eftir uppskrift en styðst við Sigrúnu, stjúpu mína og aðlaga svo að mínni stærð og óskum. Ég t.d. vildi hafa hafa frekar þrönga (svona m.v. hefðbundna lopapeysu) en er hálfhrædd um að ermarnar séu jafnvel of þröngar. Þær mættu amk ekki vera þrengri.
Í gærkvöldi þurfti ég að rekja aðeins upp, tvær lykkjur dottnar niður og ég gat ekki notað trikkið með heklunálinnu (ná þeim upp með heklunál) því önnur þeirra átti að lenda í úrfellingu :( Svona er það þegar maður heldur að maður geti gert margt í einu. Ég var að horfa á sjónvarpið eða lesa greinar á meðan ég var að prjóna en það gekk ekki eins vel eins og ég taldi mér trú um!

Friday, January 07, 2005
Enn eitt nýja bloggið
Nýja árið er tekið með trukki. Ný blogg birtast mörg á viku. Í þetta sinn handavinnublogg.
Ég hef gaman af margskonar handavinnu. Má þar nefna prjón, krosssaumur, hekl, vélsaumur, bútasaumur og akrýlmálun. Það á örugglega fleira eftir að bætast við. Það er bara svo frábært að byrja með eitthvað efni og umbreyta því í flotta mynd eða nytjahlut. Þegar maður býr til hluti fyrir aðra þá setur maður sál sína og væntumþyggju í verkið og útkoman verður stærri en bara hluturinn sjálfur. Það er minnsta mál að kaupa alls konar dót út í búð en það er engin sál í því.
Eitthvað af því sem ég hef gert er að finna á myndasíðunni en ekki allt. Sérstaklega lítið af því sem ég gerði fyrir jólin í ár þar sem myndavélin okkar er að gefast upp og nánast orðin ónothæf.
Fyrir jólin prjónaði ég mikið. Ég prjónaði þæfða inniskó á ömmur mínar og húfur á bræður mína auk ullarsokka á litla frænda. Núna er sko kominn tími til að prjóna á mig sjálfa. Nú er ég með á nálunum sokka á mig úr Regia garni og laskerma-lopapeysu úr nýja rauðspengda lopanum. Sokkamynstrið er að finna á vefnum en lopapeysumynstrið er uppúr Sigrúnu stjúpu, sem er ótrúleg prjónakerling og í raun leikur öll handavinna í höndunum á henni :o Ég málaði líka nokkrar myndir í haust og gaf annaðhvort í afmælis- eða jólagjafir.
Ég er annars búin að komast að því að maður gerir bara eitt í einu. Núna er ég t.d. í prjónastuði en í sumar var ég með algjört krosssaumsæði. Ég hugsa að næsta æði verði vélsaumur enda klæjar mig í puttana að reyna mig á nýju saumavélinni sem Laufey amma gaf mér í haust. Það eru ýmis verkefni í farveginum þar en ég held ég byrji á einhverju heimafyrir en bútasaumurinn heillar alltaf.

Subscribe to:
Posts (Atom)